Dreifarinn
Blíða
Fréttir úr Lýsuhólsskóla (af http://lysuholsskoli.vortex.is/frettir/)
26. apríl 2012
Flöskuskeyti fundið 25. apríl 2012
Sigríður Gísladóttir, kennari við Lýsuhólsskóla, rakst á flöskuskeyti í fjörunni við Ósakot í gær. Hún kom með það í skólann og þar var það opnað.
Svo merkilega vildi til að flaskan innihélt umhverfisverkefni, fannst á degi umhverfisins af kennara við Grænfánaskóla.
Flöskuskeytið er hluti af verkefni sem heitir The drift bottle project (Flaska á reki) og undir það skrifar Hafrannsóknarstofnun í Kanada.
Þar segir m.a.: "Við þörfnumst hjálpar þinnar! Með því að finna þessa flösku ert þú orðinn þátttakandi í rannsókn okkar á hnattrænum hafstraumum. Vinsamlegast tilkynnið fund flöskunnar og við segjum þér hversu langt flaskan hefur ferðast".
Þar segir einnig: "Flaska, sem hent er í sjóinn og rekst þar með straumum, getur borist á land hvar sem er í heiminum og sama er að segja um olíumengun og rusl. Til að vernda hafið er mikilvægt að þekkja þessa strauma".
Við í Lýsuhólsskóla sendum nú upplýsingar um fund flöskunnar á netfang kanadísku Hafrannsóknarstofnunarinnar og fáum væntanlega fleiri upplýsingar um rannsóknina.
The drift bottle project
Tímabært að hætta snjómokstursumræðunni í bili...
Fyrsti maí er á næsta leiti og vor í lofti. Í dag rignir reyndar all mikið og sú sem þetta skrifar hyggst fara út á eftir og setja lambrollurnar inn en hér er sauðburður langt kominn og hefur gengið vel.
Grásleppukarlar eru að ljúka vertíð sinni og þorskanet að fara í sjó. Gott fiskerý var á grlásleppu en nú var sú breyting á að allri grásleppu þarf að landa. Það er vægast sagt frábært og með eindæmum að leyft hafi verið svo lengi að kasta þessum fiski í sjóinn aftur eftir að búið var að rista hann lifandi á kvið og taka úr honum hrogninn! Nýr markaður í Kína er ástæða þess að nú er hægt að selja grásleppu þangað.
Ófærð (af skessuhorn.is)
Útnesvegur á Snæfellsnesi ófær
6. desember 2011
Á Vesturlandi er víða hálka eða hálkublettir og sumstaðar skafrenningur.  Þá er Útnesvegur á Snæfellsnesi ófær. Nú er hálka í öllum landshlutum og víða mikið frost. Varað er við aðstæðum þar sem þurr ís eða þjappaður snjór mynda slípað og mjög hált vegyfirborð.
Snjómokstur
Vegflokkun:
Þjóðvegir landsins eru flokkaðir í nokkra flokka eftir mikilvægi. Fyrst og fremst eru þeir flokkaðir í stofnvegi, tengivegi, héraðsvegir (áður safnvegir) og landsvegi. Allir venjulegir þjóvegir eru stofnvegir. Út frá þeim liggja síðan landsvegir sem teljast ekki til mikilvægra samgönguæða eins og t.d. Kjalvegur og Sprengisandsleið. Tengivegir liggja t.d. niður að Djúpalóni og Malarrifi.  Héraðsvegir liggja síðan að sveitabæjum og öðrum mannabyggðum.
Vegtegundir:
Vegir skiptast í vegtegundir. Þær eru A, B, C, D og F. Þessi flokkun fer t.d. eftir hvort vegir eru með einni eða tveim akreinum. Allir landsvegir eru t.d. í F og í fokkana C7 og D fara flestir héraðs og tengivegir, auk landsvega.
Þjónustflokkun:
Vetrarþjónustu er skipt í fjóra flokka út frá þéttbýlisstöðum sem eru svo kallaðir tengistaðir og öðrum ,,hnútstöðum“ sem tengja vegakerfið.  Flestir þjóðvegir landsins eru í þjónustuflokki 3, t.d. allir Vestfirðir og suðurland til Austfjarða. Í flokki 4 eru síðan vegir eins og á Hornströndum, Skógarströnd á norðanverðu Snæfellsnesi, um Heidal og í Breiðuvík í Snæfellsbæ. Í þjónustuflokki 1 eru bara vegir á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni þess.
Í þjónustflokki 3 skal t.d. hefja mokstur við minna en 6cm snjódýpt, vegur skal hálkuvarinn á varasömum stöðum, svo sem þar sem er vindasamt er. Manni detta í hug nokkri staðir hér á sunnanverðu nesinu en man ekki eftir að hafa séð neinar slíkar hálduvarnir í mörg ár. Í þessum þjónustflokki er vegurinn frá Hellisandi, um Ólafsvík og að norðanverðu til Stykkishólms. Einnig yfir Fróðárheiði, út Staðarsveit og hreppana og svo áfram.
Í þjónustuflokki 4 (Breiðavík, Búðaafleggjari, Arnastapaafleggjari, Hellnavegur) skal t.d. vegur  ,,hálkuvarinn á varasömum stöðum eða við varasamar veðuraðstæður (þ.e. þar sem og þegar búast má við sterkum vindstrengjum eða sviptivindum) þegar flughálka kemur upp eða hætta er á að slík hálka geti myndast“ og ,, mokstur skal byrja við minna en 8 sm snjódýpt og hreinsun akbrautar og vegamóta og hálkueyðingu skal lokið innan 4 klst frá því að snjókomu lýkur“.
Vegi hér í sunnanverðum Snæfellsbæ skal þjónusta á eftirfarandi hátt, sakv.r eglum Vegagerðarinnar fyrir veturinn 2011-12:
1.	Staðarsveit og yfir Fróðárheiði skal moka alla daga nema laugardaga (þjónustuflokkur 3).
2.	Frá Heiðarkasti um Breiðuvík, fram hjá Arnarstapa og Hellnum að minnismerki Guðríðar Þorbjarnardóttur fyrir vestan Hellna skal moka mánudaga, miðvikudaga, fimmtudaga og föstudaga (þj.fl. 4).
3.	Arnarstapaveg skal moka mánudaga, miðvikudaga, fimmtudaga og föstudaga (þj.fl. 4).
4.	Um Hellnaveg (vegin niður að Hellnum) gildir svokallaður helmingamokstur samkv. upplýsingum frá Vegagerðinni, þ.e. Snæfellsbær ákveður hvenær skal moka og Vegagerðin greiðir þá helming á móti sveitarfélaginu. Sama gildir um Útnesveg fyrir Jökul.
Hálkuvarið í ,,flughálku“ skal frá Hraunsmúla, að og upp Fróðárheiði, um Axlarhóla og til og með Fellsbrekku fyrir ofan Arnarstapa og út að Hellnaafleggjara að  ,,Guðríðarplani“ en svo nefnist áningarstaður við styttu af Guðríði Þorbjarnardóttur frá Laugarbrekku en henni þótti ákaflega gaman að ferðast, fór meðal annars til Ameríku þar sem hún átti fyrsta hvíta barnið og síðan til Páfagarðs. Það er alveg sjálsagt að halda veginum opnum fyrir hana og minna má það ekki vera fyrir svo víðförla konu, eins þarf hún að passa sig á hálkunni enda orðin  rúmlega þúsund ára gömul.
Vegagerðin gefur upp meðalfjölda bíla sem fara um þessa vegi á tímabilinu frá og með desember og til og með mars. Um Staðarsveit fara 200 bílar, um Fróðárheiði  fara 100 bílar og út í Breiðuvík fara 50 bílar.
Og nú, lesendur góðir, vitið þið allt um það hversvegna, hvernig og hvar snjómokstur fer fram á svæðinu.
Hvassviðri (skessuhorn.is)
Hvassviðri um allt Vesturland
Frá því í morgun hefur verið allhvasst um allt vestanvert landið. Vindur í hviðum fer upp fyrir 20 m.sek á öllum sjálfvirkum veðurstöðvunum sem tengdar eru hér á vef Skessuhorns, utan Svínadals í Dölum. Mestur er vindhraðinn á Kjalarnesi þar sem vindur slær hátt í 40 m.sek í hviðum, nú á þriðja tímanum í dag. Ferðir Strætó bs á Akranes falla niður alltaf þegar vindur í hviðum fer upp fyrir 30 m.sek. og á það við nú.
Í tilkynningu frá Vegagerðinni nú klukkan 15 segir að óveður sé á Kjalarnesi og á sunnanverðu Snæfellsnesi. Hálka er á Fróðarárheiði og hálkublettir við Hraunsmúla. Hálkublettir eru á Bröttubrekku og á Svínadal.
Bálhvasst og skóli felldur niður!
Ég læt hér fljóta með vísu sem eignuð er Gísla lónnsa og uppi var hér undir Jökli fyrir all mörgum áratugum, hann hafði farið að leita kinda en fann ekki og sjálfsagt eru einhverjir bændur í þeim sporum þessa dagana:
Illt er að kljást við gimbrarhaus,
gott er af honum kjötið samt.
Ekki get ég fundið hann
Sjónvarpið bilað
Hrina stórafmæla á næsta ári, 2012
Fréttir af síðu Lýsuhólsskóla
Fimmti Grænfáninn
Nýr Grænfáni væntanlegur
Umsókn um nýjan Grænfána var send til Landverndar síðastliðið vor en komið er að því að fá fánann endurnýjaðan í fimmta sinn.
Orri Páll og Gerður, sem sjá um verkefnið Skólar á grænni grein hjá Landvernd, heimsóttu okkur í tilefni af umsókninni og eftir spjall við nemendur skólans voru þau þess fullviss að rétt væri að veita okkur nýjan fána. Þeim leist einnig vel á verkefni okkar og viðfangsefni. Fáninn er veittur til tveggja ára í senn og er alþjóðleg viðurkenning þess að í skólanum sé unnið markvisst að fræðslu um umhverfismál, umhverfisstefna hafi verið sett og henni framfylgt. http://www.landvernd.is/graenfaninn/yflokkar.asp?flokkur=1055
Eftir er að finna afhendingardag fyrir nýja fánann og verður hann auglýstur þegar þar að kemur.
IMG_4578
Sep 29, 2011
Leitin að heita vatninu
Nemendur eru önnum kafnir í átthagafræðinni. Einn liðurinn í þeirri vinnu er að kynna sér leitina að heita vatninu á Lýsuhóli. Til að fræðast um hana og afla gagna fóru þeir í vettvangsferð um svæðið, leituðu uppi allar holurnar sem hafa verið boraðar, hnitsettu þær og tóku myndir af þeim en þær reyndust 19 að tölu. Frekari úrvinnsla á verkefninu bíður verri tíðar þegar það er gott að vera inni og setja verkefnið fram á aðgengilegan hátt fyrir foreldra og aðra áhugasama.  Hér eru myndir frá ferðinni og fleiri myndir eru á flickr.
Sep 20, 2011
Ræktun
Ræktun í gróðurhúsinu gengur furðu vel. En þar er ræktað spínat og nú reyndum við að sá baunagrasi líka.
Ekki verður langt að bíða eftir spínatinu í salatið í hádegismatnum í skólanum en lengra verður í baunirnar.
Sep 13, 2011
Á hestbaki
Jóhanna á Lýsuhóli bauð nemendum 2.-5. bekkjar á hestbak í reiðhöllinni á bænum. Fyrst var nemendunum sýnt og sagt frá hvernig ætti að umgangast hestana og stjórna þeim og síðan var farið á bak og látið reyna á hæfileikana. Allir sýndu áhuga og hugrekki og gekk vel á hestbaki. Bestu þakkir til Jóhönnu fyrir framtakið.
Sep 8, 2011
Berjaferð
Þriðjudaginn 6. september fóru nemendur Lýsuhólsskóla í berjaferð. Haldið var í vestur að Dagverðará og farið upp með hraunkantinum í átt að Jöklinum eins og venjulega. Að tínslu lokinni var haldið að Arnarstapa þar sem nemendur fengu hádegisverð hjá Ólínu í Samkomuhúsinu. Þar gafst kostur á að skoða gamla muni, bækur og fleira áhugavert. Við þökkum Ólínu kærlega fyrir móttökurnar. Eftir hádegisverðinn gátu nemendur farið að Bjargi og hoppað litla stund á hoppubumbunni sem Haddý hleypti lofti á sérstaklega fyrir þá. Bestu þakkir til Haddýar. Að hoppi loknu var haldið heim á leið með berjafenginn.
Sep 7, 2011
Kofinn
Í dag var fyrsta skóflustungan tekin að nýjum kofa sem nemendur miðdeildar ætla að byggja. Honum er ætlað það hlutverk að  nemendur þjálfist í verklegum vinnubrögðum og vinni eftir teikningum við að byggja hús.
Húsið mun síðan þjóna ýmsum hlutverkum sem leiktæki á skólalóðinni. Hér er mynd af fyrstu skóflustungunni.
Aug 31, 2011
Rjúpur í heimsókn
Í dag þegar nemendur ætluðu að fara að vega salt voru komnir gestir. Rjúpnapar með sex unga vöppuðu um leikvöllinn og prófuðu tækin. Hér eru myndir af þeim og fleiri á flickr.
Aug 30, 2011
Heyannir
Nemendur Lýsuhólsskóla tóku daginn snemma og réðust í það verk í morgun að slá eyjuna og sá spínati í gróðurhúsinu okkar. það hefur sýnt sig að spínat vex vel þó að birtu fari að bregða fljótlega. Væntanlega geta nemendur farið að sækja spínat í salatið í lok september. Hér eru tvær myndir frá heyskapnum.
Hrútasýning-skilaboð frá Sauðfjárræktarfélagi Staðarsveitar
Hrútasýning Sauðfjárræktarfélags Staðarsveitar verður haldin á Gaul föstudaginn 7. október n.k. kl. 11
Allir velkomnir
Laugardaginn 15. október verður héraðssýning Snæfellsness í Bjarnarhöfn. Við minnum á að hrútar sem keppa þar þurfa að vera búnir að fá dóm.
Allar nánari upplýsingar veitir nýkjörin stjórn félagsins:
Heiða (Gaul), Svenni (Fossi) og Gísli Örn (Álftavatni)
Fundargerðir umhverfis- og skipulagsnefndar Snæfellsbæjar-hlutar (af snb.is)
Prentvæn útgáfa Prentvæn útgáfa
Dags. 30. Ágúst 2011
64. fundur
umhverfis- og skipulagsnefndar
haldinn í Ráðhúsi Snæfellsbæjar,
þriðjudaginn 30. ágúst 2011 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu:
Jónas Kristófersson, Bjarni Vigfússon, Pétur Steinar Jóhannsson, Drífa Skúladóttir, Svanur Tómasson,
Fundargerð ritaði: Smári Björnsson , Byggingarfulltrúi
Dagskrá:
1. 1108026 - Grundarslóð 4 - skil á lóð.
Ólafur A. Gíslason, kt. 290644-3999,Ásbúð 74, Garðabæ, skilar inn byggingarlóð við Grundarslóð 4, Arnarstapa.
Umhverfis- og skipulagsnefnd Snæfellsbæjar samþykkir erindið.
2. 1108007 - Sjávarlóð - Umsókn um lóð
Friðrik Bergsveinsson, kt. 270946-3999, sækir um sjávarlóð á Arnarstapa fyrir heilsárshús. Stærð á húsi yrði um 100-110 fm.
Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar fyrir umsóknina, en sjávarlóðirnar á Arnarstapa eru ekki tilbúnar til úthlutunar enn sem komið er. Unnið er að úthlutunarreglum fyrir þessar lóðir.
3. 1108012 - Grundarslóð 4 - umsókn um lóð
Sigurborg Benediktsdóttir, kt. 311283-2359 sækir um byggingarlóð að Grundarslóð 4, Arnarstapa.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að úthluta Sigurborgu Benediktsdóttur lóðina.
7. 1108014 - Ægissíða - Umsókn um byggingarleyfi fyrir tækjageymslu
Jón Guðmann Pétursson, kt. 311259-3779 sækir um byggingarleyfi fyrir 96 fm tækjageymslu við Ægissíðu í Staðarsveit.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita byggingarleyfi fyrir 96 fm tækjageymslu við Ægissíðu.
8. 1108006 - Jaðar 12 - Geymsluhús
Bergsveinn Þorkelsson, kt. 30652-7599, sækir um byggingarleyfi fyrir 7,25 fm geymsluhús við sumarhús sitt að Jaðri 12, Arnarstapa. um er að ræða bjálkahús frá Húsasmiðjunni.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir byggingarleyfi fyrir 7,25 fm geymsluhús að Jaðri 12.
10. 1108002 - Lækjarbakki 4 - stækkun á sólpalli
Haraldur Þór Gunnlaugsson, kt. 231267-5819, sækir um leyfi fyrir 30 fm stækkun á sólpalli sakv. meðfylgjandi teikningu að Lækjarbakka 4, Arnarstapa.
Umhverfis- og skipulagsnefnd Snæfellsbæjar samþykkir erindið.
11. 1108003 - Brekkubær - Breyting á notkun aðstöðuhúss
Sverrir Hermansson f.h. Hótel Hellna ehf, sækir um leyfi til að breyta og endurbæta núverandi hús að Brekkubæ, Hellnum. Húsin eru í dag nýtt sem aðstöðuhús og hlaða (geymsla). Hlöðu verður breytt í íþrótta- og samkomusal fyrir allt að 49 manns og aðstöðuhús verður endurskipulagt samkv. teikningu. Húsið verður allt einangrað að utan og klætt með standandi borðaklæðningu í samræmi við núverandi hús á svæðninu. Umhverfis- og skipulagsnefnd Snæfellsbæjar samþykkir erindið.
14. 1108013 - Langaholt - reyndarteikningar Gistihúsið Langaholt ehf., óskar eftir samþykki nefndarinnar á reyndarteikningum af Gistihúsinu Langaholti. Teikningarnar eru unnar af Elínu G. Gunnlaugsdóttur, dags. 30.06.2011.
Umhverfis- og skipulagsnefnd Snæfellsbæjar samþykkir erindið.
21. 1108025 - Ölkelda 2 - umsókn um byggingarleyfi fyrir bílskúr.
Jón Svavar Þórðarson, kt. 020753-5289, sækir um byggingarleyfi fyrir 62 fm steyptri viðbyggingu samkv. teikningum dags. 23. ágúst 2011. Einnig er sótt um leyfi til að klæða eldri part af húsi með bárujárnsklæðningu eins og verður á viðbyggingunni.
Umhverfis- og skipulagsnefnd Snæfellsbæjar samþykkir erindið.
23. 1108023 - Brekkubær - viðbygging mbl. 11
Hótel Hellnar ehf sækir um byggingarleyfi fyrir 269,4 fm viðbyggingu við Hótel Hellna.
Umhverfis- og skipulagsnefnd Snæfellsbæjar samþykkir erindið.
24. 1108018 - Djúpalónssandur - göngustígar og breyting á bílastæði.
Guðbjörg Gunnarsdóttir f.h. Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls sækir um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu göngustígs við Djúpalónssands. einnig er sótt um leyfi til að breyta bílastæði við Dnúpalónssand samkv. skipulagsupprætti af svæðinu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd Snæfellsbæjar samþykkir erindið.
27. 1101019 - Snæfell Félagsheimili- Reyndarteikningar til samþykktar.
Elín G. Gunnlaugsdóttir arkitek leggur fyrir nefndina reyndarteikningar af Félagsheimilinu Snæfelli til samþykktar, teikningarnar hafa fengið samþykki eldvarnareftirlits. Einnig liggur fyrir rekstrarleyfisumsókn um leyfi til að reka veitingastað í flokki III, veitingasölu og greiðasölu og gististað í flokki II, gistiskála í félagsheimilinu Snæfelli á Arnarstapa, frá Ólína Gunnlaugsdóttir, kt. 250762-4539. Fjallað var um sama erindi á 58. fundi nefndarinnar og var málinu þá hafnað á þeim rökum að ekki lægju fyrir teikningar af núverandi húsi. Ólína Gunnlaugsdóttir, kt. 250762-4539, hefur sótt um leyfi til að reka
Umhverfis- og skipulagsnefnd Snæfellsbæjar samþykkir reyndarteikningar fyrir húsið. Og felur byggingarfulltrúa og Slökkviliðsstjóra að gera úttekt á
húsinu í samræmi við samþykktar teikningar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd, fundur nr. 63
Prentvæn útgáfa Prentvæn útgáfa
Dags. 5. Júlí 2011
63. fundur
umhverfis- og skipulagsnefndar
haldinn í Ráðhúsi Snæfellsbæjar,
þriðjudaginn 5. júlí 2011 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu:
Sigurjón Bjarnason, Jónas Kristófersson, Bjarni Vigfússon, Pétur Steinar Jóhannsson, Drífa Skúladóttir,
Fundargerð ritaði: Smári Björnsson , Byggingarfulltrúi
5. 1107003 - Langaholt - Reyndarteikningar
Óskað ef eftir samþykki nefndarinnar á innsendum reyndarteikningum af Langaholti í Staðarsveit.
Umhverfis- og skipulagsnefnd Snæfellsbæjar samþykkir erindið.
10. 1107007 - Hótel Hellnar - Rekstarleyfi, endurnýjun.
Hótel Hellnar ehf óskar eftir endurnýjun á rekstrarleyfi vegna stækkunar á gistiaðstöðu um 11 herbergi. Herbergin verða samtals 31 til útleigu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd Snæfellsbæjar samþykkir erindið.
Umhverfis- og skipulagsnefnd, fundur nr. 62
Prentvæn útgáfa Prentvæn útgáfa
Dags. 7. Júní 2011
62. fundur
umhverfis- og skipulagsnefndar
haldinn í Ráðhúsi Snæfellsbæjar,
þriðjudaginn 7. júní 2011 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu:
Sigurjón Bjarnason, Jónas Kristófersson, Pétur Steinar Jóhannsson, Drífa Skúladóttir, Sturla Fjeldsted, Svanur Tómasson,
Fundargerð ritaði: Smári Björnsson , Byggingarfulltrúi
2. 1106007 - Músaslóð 8 - skila inn lóð
Arnardrangur ehf, skilar inn lóða að Músaslóð 8 á Arnarstapa. Umhverfis- og skipulagsnefnd Snæfellsbæjar samþykkir erindið. Kanna þurfi með hvort eitthvað hvíli á lóð.
4. 1102006 - Breyting deiliskipulags frístundahúsa á Hellnum.
Búið er að auglýsa skipulagið með athugasemdarfrest til 5. maí 2011. engar athugasemdir bárust. Umhverfis- og skipulagsnefnd Snæfellsbæjar samþykkir að vinna skipulagið áfram.
7. 0906005 - Hraungerði - afstöðuuppdráttur
Björn B. Thors óskar eftir samþykki á afstöðuuppdrætti að Hraungerði í Breuðuvík. Gert er ráð fyrir að reisa hús að Hraungerði í Snæfellsbæ. Innan byggingarreits aðalhúss er gert ráð fyrir allt að 125 fm auk geymsluhúss allt að 25 fm. Stefna húsann taka mið af Hraunprýði. Málinu var frestað á síðasta fundi og málið skoðað frekar. Umhverfis- og skipulagsnefnd Snæfellsbæjar samþykkir að vinna skipulagið áfram.
12. 1106004 - Gröf - pallur og hurð
Ragnhildur Bköndal óskar eftir leyfi til að setja hurð 213 cm x 236 cm. Einnig er óskað eftir leyfi fyrir sólpalli. Umhverfis- og skipulagsnefnd Snæfellsbæjar samþykkir erindið.
18. 1106005 - Þórdísarflöt - framkvæmdaleyfi fyrir veg og vatnsborun.
Þórdís Kjartansdóttir óskar eftir framkvæmdaleyfi lagningu heimreiðar að Þórdísarflöt í samræmi við breytingartillögu á deiliskipulagi vegna frístundahúsa á Hellnum.
Einnig er sótt um framkvæmdaleyfi fyrir vatsnborun að Þórdísarflöt. Staðsetning yrði í samræmi við deiliskipulag af svæðinu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd Snæfellsbæjar samþykkir erindið.
20. 1106003 - Gröf - heimagisting
Ragnheiður Blöndal hefur sótt um leyfi til sýslumanns til að reka gististað í flokki 1, heimagistingu að Gröf í Snæfellsbæ. Hún ætlar að bjóða upp á 7 daga hestaferðir með gistingu í Gröf.
Umhverfis- og skipulagsnefnd Snæfellsbæjar samþykkir erindið.
Umhverfis- og skipulagsnefnd, fundur nr. 61
Prentvæn útgáfa Prentvæn útgáfa
Dags. 3. Maí 2011
61. fundur
umhverfis- og skipulagsnefndar
haldinn Röst,
þriðjudaginn 3. maí 2011 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu:
Sigurjón Bjarnason, Jónas Kristófersson, Bjarni Vigfússon, Pétur Steinar Jóhannsson, Drífa Skúladóttir, Svanur Tómasson,
Fundargerð ritaði: Smári Björnsson , Byggingarfulltrúi
Dagskrá:
1. 1104008 - Minnisvarði um Guðmund Bergþórsson
Kvæðamannafélagið Iðunn óskar eftir leyfi til að reisa minnismerki og upplýsingaskilti um Guðmund Bergþórsson, rímnaskáld á Arnarstapa (1657-1705). Hugmyndin er að finna því stað við bílastæðið ofan við höfnina á Arnarstapa. Um er að ræða stuðlabergssúlu eins og hálfs til tveggja metra háa og ofan á henni stendur hnefi vinstri handar sem myndlistarmaðurinn Páll Guðmundsson á Húsafelli hefur mótað úr steini. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindið. Staðsetning á minnismerkinu verði í samráði við byggingarfulltrúa.
2. 1007008 - Umsókn um breytingu á Aðalskipulagi Snæfellsbæjar Sleggjubeina.
Kynnt er tillaga að breytingu á aðalskipulagi Snæfellsbæjar vegna Sleggjubeinu. Breyting á uppdrætti: 1. Skilgreint er brunnsvæði, grannsvæði og fjarsvæði vatnstöku og lega vatnslagnar 2. Efnistökusvæði N-10 er leiðrétt í samræmi við uppréttan loftmyndagrunn. 3. Bætt er inn núverandi slóða að efnistökusvæði og gönguleið að fyrirstöðu. Búið er að leita umsagnar Umhverfisstofnunar, Fornleifaverndar og Vegagerðar. Umhverfis- og skipulagsnefnd var kynnt staða málsins. Málið er í frekari skoðun.
3. 0906005 - Hraungerði - afstöðuuppdráttur
Björn B. Thors óskar eftir samþykki á afstöðuuppdrætti að Hraungerði í Breiðuvík. Gert er ráð fyrir að reisa hús að Hraungerði í Snæfellsbæ. Innan
byggingarreits aðalhúss er gert ráð fyrir allt að 125 fm auk geymsluhúss allt að 25 fm. Stefna húsanna taka mið af Hraunprýði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd frestar málinu meðan svæðið er skoðað frekar.
5. 1104014 - Deiliskipulag frístundabyggðar, Hellnum
Hellnaþorpið ehf kynnir tillögu að deiliskipulagi frístundabyggðar á Hellnum. Gert er ráð fyrir þyrpingu 20 frístundalóða á Hellnum í Snæfellsbæ. Einnig er gert ráð fyrir einu leiksvæði um miðbik þyrpingarinnar. Nýtingarhlutfall verði allt að 0,03 á hverri frístundalóð.
Umhverfis- og skipulagsnefnd er kynnt málið og frestar erindinu þar sem ekki er kominn samningur vegna vatnstöku á svæðinu.
6. 1104015 - Deiliskipulag Hellisvalla á Hellnun, breyting.
Hellnaþorpið ehf, kynnir tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hellisvalla á Hellnum. Í tillögunni er gert ráð fyrir 8 nýjum lóðum við Kjarvalströð. Útlínum lóðar nr. 18 er breytt. Bílastæðum breytt og bílastæði fyrir eldri og nýjarlóði eru í göturýminu á sambærilegan hátt og fyrir breytingu. Gert er ráð fyrir rúmlega 1.5 stæði á hvert hús. Byggingarreitir eru 7x10m. Umhverfis- og skipulagsnefnd er kynnt málið og frestar erindinu þar sem ekki er búið að ganga frá samningi um vatnstöku.
7. 1104016 - Kirkjuhóll - geymsluhúsnæði
Hólar ehf, kt.660803-2540 sækja um byggingarleyfi fyrir geymsluhúsnæði að Kirkjuhóli í Staðarsveit. Um er að ræða tvo matshluta annar 32,6 fm að stærð og hinn 57, 2 fm að stærð
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir teikningar fyrir mhl. 05 og mhl. 09 samkvæmt teikningu, en engar frekari stækkanir við ummrædd hús.
8. 1104018 - Ægissíða - Tækjageymsla
Jón Guðmann Pétursson, kt. 311259-3779, sækir um byggingarleyfi fyrir 96 fm tækjageymslu í landi Ægissíðu samkv. meðf. uppdrætti.
Umhverfis- og skipulagsnefnd frestar erindinu og óskar eftir frekari teikningum af afstöðu af húsi og vegi að húsi.
10. 1105001 - Þjóðgarður - skilti
Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull óskar eftir leyfi til að setja upp nokkur fræðslu- og leiðbeiningarskilti, vegvísa og ljóðaskilti. Við uppsetningu allra skiltana verður vinnu hagað á þann hátt að sem minnst spjöll hljótist af og að skiltin skili tilgangi sínum sem leiðbeinandi og um leið fræðandi fyrir gesti svæðisins.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindið.
13. 1104007 - Á Eyrunum - Rekstarleyfi
Áning ehf, kt. 621009-0600, óskar eftir rekstarleyfi fyrir gisti- og veitingastað á Á Eyrunum, Staðarsveit.
Umhverfis- og skipulagsnefnds samþykkir erindið.
17. 1104011 - Kjarvalströð 7 - Rekstarleyfi
Viator ehf, kt. 571002-4180, sækir um rekstarleyfi fyrir gististað að Kjarvalströð 7, Arnarstapa.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við umrædda starfsemi að uppfylltum þeim skilyrðum sem gerðar eru til gististaða í flokki II.
18. 1104013 - Kjarvalströð 13 - rekstarleyfi
Viator ehf, kt. 571002-4180, sækir um rekstarleyfi fyrir gististað að Kjarvalströð 13, Arnarstapa.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við umrædda starfsemi að uppfylltum þeim skilyrðum sem gerðar eru til gististaða í flokki II.
21. 1105005 - Vatnshellir - öryggismál
Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull óskar eftir að sveitafélagið geri öryggisúttekt á Vatnshelli.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að byggingarfulltrúi geri úttekt á Vatnshelli.
Umhverfis- og skipulagsnefnd, fundur nr. 60
Prentvæn útgáfa Prentvæn útgáfa
Dags. 29. Mars 2011
60. fundur
umhverfis- og skipulagsnefndar
haldinn í Röst,
þriðjudaginn 29. mars 2011 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu:
Sigurjón Bjarnason, Jónas Kristófersson, Drífa Skúladóttir, Svanur Tómasson, Sturla Fjeldsted,
Fundargerð ritaði: Smári Björnsson , Byggingarfulltrúi
5. 1003029 - Plássið Laugarbrekku - Umsókn um byggingarleyfi.
Ólafur Haukur Símonarsson, kt. 240847-2649, sækir um að setja upp vegg í forrými mennigarmiðstöðvarinnar að Hellnum þannig að myndist bakrými og aðstaða starfsmanna í tengslum við bráðabirgðaeldhús. Rýmið opnast út í forrými Mennigamiðstöðvar. Breytingin er gerð eftir ráðleggingu Vinnueftirlits ríkisins.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindið.
9. 1103011 - Slitvindastaðir - niðurrif.
Guðrún Sigurðardóttir, kt. 110536-3569 óskar eftir leyfi til að rífa íbúðarhús, hlöðu, fjós og skúr í landi Slitvindastaða. Húsin hafa ekki verið notðu síðan 1983 og eru mjög illa farin. Fastanúmer eigna: Íbúðarhús 211-3774, fjós fastanúmer 211-3772, matshluti 03, hlaða fastanúmer 211-3772, matshluti 07 og skúr fatsnúmer 211-3772, matshluti 10.
Umhverfis - og skipulagsnefnd samþykkir erindið.
Umhverfis- og skipulagsnefnd, fundur nr. 59
Prentvæn útgáfa Prentvæn útgáfa
Dags. 22. Febrúar 2011
59. fundur
umhverfis- og skipulagsnefndar
haldinn í Röst,
þriðjudaginn 22. febrúar 2011 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu:
Sigurjón Bjarnason, Jónas Kristófersson, Bjarni Vigfússon, Pétur Steinar Jóhannsson, Drífa Skúladóttir, Svanur Tómasson,
Fundargerð ritaði: Smári Björnsson , Byggingarfulltrúi
Dagskrá:
1. 1102005 - Grundarslóð 14 - Umsókn um afnot af lóð.
Hartmann Jóhannsson, Kveldúlfsgötu 22, Borgarnesi, sækir um leyfi fyrir afnot af lóð við Grundarslóð 14 á Arnarstapa, sumarið 2011 undir hjólhýsi. Umhverfis- og skipulagsnenfnd samþykkir að veita Hartmanni Jóhannssyni stöðuleyfi fyrir hjólhýsi sitt á lóð Grundarslóðar 14 á Arnarstapa til 1. september 2011.
4. 1102006 - Breyting deiliskipulags frístundahúsa á Hellnum.
Vera Roth, kynnir breytingu á deiliskipulagi frístudahúsa á Hellnum. Deiliskipulag fyrir, Melabúð, Veruflöt, Búarbrunn, Bálhól og tvö hús á Þórdísarflöt var staðfest í október 2010. Nú er sótt um breytingu sem felur í sér breytta aðkomu að Þórdísarflöt, þannig að aðkoma sunnan lóðar Bálhóls verður flutt í nyrsta hluta lóðarinnar Búðarbrunns og minnar lóðin sem því nemur. Byggingarreit Bálhós er hliðarð um 6 m til vesturs. Deiliskipulagið er í samræmi við aðalskipulag Snæfellsbæjar, Arnarstapi og Hellnar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að skipulagið verði auglýst samkv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
5. 1010028 - Nýtt deiliskipulag verslunar- og þjónustulóðar á Arnarstapa Deiliskipulagsuppdráttur hefur verið leiðréttur í samræmi við athugasemdir Skipulagsstofnunar, Mannvirkjastofnunar og Heilbrigðiseftirlits Vesturlands.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir breyttan uppdrátt eftir auglýsingu. Nýr uppdráttur verði sendur á Skipulagsstofnun ásamt umsögnum til yfirferðar samkv. 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
8. 1102010 - Þórdísarflöt - Umsókn um byggingarleyfi
Ágúst Hlynur Guðmundsson kt. 210173-4479 sækir um byggingarleyfi fyrir 120 fm og 399.1 rm sumarhúsi að Þórdísarflöt Hellnum. Teikingar eftir Gísla Guðmundsson.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita byggingarleyfi fyrir 120 fm sumarhús að Þórdísarflöt.
Umhverfis- og skipulagsnefnd, fundur nr. 58
Prentvæn útgáfa Prentvæn útgáfa
Dags. 11. Janúar 2011
58. fundur
umhverfis- og skipulagsnefndar
haldinn  í Röst,
þriðjudaginn 11. janúar 2011 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu:
Sigurjón Bjarnason, Jónas Kristófersson, Drífa Skúladóttir, Pétur Steinar Jóhannsson, Svanur Tómasson, Sturla Fjeldsted,
Fundargerð ritaði: Smári Björnsson , Byggingarfulltrúi
2. 1007008 - Umsókn um breytingu á Aðalskipulagi Snæfellsbæjar Sleggjubeina.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að senda málið til umsagnar á eftirtalda aðila: Umhverfisstofnun, Fornleifanefnd og Vegagerð þegar umsagnir frá eftirtöldum aðilum hefur borist mun nefndin fjallað frekar um breytingar tillöguna.
4. 1010028 - Nýtt deiliskipulag verslunar- og þjónustulóðar á Arnarstapa.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að senda deiliskipulagið til Skipulagsstofnunar til yfirferðar skv. 3. mgr. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga.
6. 1012003 - Melabúð 1 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir sumarhús.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita byggignarleyfi fyrir 78,1 fm einnar hæðar frístundahús að Melabúð 1, Hellnum, samkv. teikningum dags. 06.01.2011, nr. 01, teiknað af Hildigunni Haraldsdóttur. Deiliskipulag fyrir svæðið var samþykkt 21.09.10 og birt í B-deild Sjórnartíðinda 08.10.10.
10. 1101014 - Kjarvalströð 9 - breyttar teikningar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir breyttar teikningar vegna Kjarvalstraðar 9, dags. í júní 2005, breytt 17.11.2008 og 04.11.2009, nr. A-01
11. 1101015 - Kjarvalströð 14 - Breyttar teikningar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir breyttar teikningar vegna Kjarvalstraða 14, dags. í júní 2005, breytt 17.11.2008, 04.11.2009 og 16.12.2010, nr. A-01.
15. 1012005 - Plássið Laugabrekku - Umsögn um rekstrarleyfi.
Umhverfis- og skipulagsnefnd hafnar erindinu þar sem framkvæmdum við breytingar á húsnæði í samræmi við samþykktar teikningar er ekki lokið.
18. 1012001 - Félagsheimilið Lýsuhóli - umsögn um rekstarleyfi.
Umhverfis- og skipulagsnefnd hafnar erindinu því ekki liggur fyrir staðfest afrit af aðaluppdrætti sem sýnir afmörkun þess rýmis sem ætlað er fyrir reksturinn.
19. 1101019 - Snæfell - Umsögn vegna rekstrarleyfis.
Umhverfis- og skipulagsnefnd hafnar erindinu á þeim rökum að ekki liggja fyrir samþykktar teikningar af núverandi breytingum á húsnæði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd, fundur nr. 57
Prentvæn útgáfa Prentvæn útgáfa
Dags. 2. Nóvember 2010
57. fundur
umhverfis- og skipulagsnefndar
haldinn  í Röst,
þriðjudaginn 2. nóvember 2010 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu:
Bjarni Vigfússon, Pétur Steinar Jóhannsson, Drífa Skúladóttir, Sturla Fjeldsted,
Svanur Tómasson,
Fundargerð ritaði: Smári Björnsson , Byggingarfulltrúi
2. 1007008 - Umsókn um breytingu á Aðalskipulagi Snæfellsbæjar
Sleggjubeina.
Umhverfis- og skipulagsnefnd var kynnt málið af hagsmunaaðilum.
4. 1007011 - Nýtt deiliskipulag fyrir Laugarbrekku.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að senda skipulagstillöguna til
Skipulagsstofnunar til yfirferðar samkv. 3. mgr. 25. gr. skipulags - og
byggingarlaga.
5. 1008009 - Deiliskipulag vistvænnar þyrpingar á Hellnum - breyting.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að senda skipulagstillöguna til
Skipulagsstofnunar til yfirferðar samkv. 1. mgr. 26. gr. skipulags - og
byggingarlaga.
7. 1010026 - Hofgarðar - breyting á deiliskipulagi.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að skipulagstillagan verði kynnt
samkv. 2. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga.
Skipulagstillagan felur í sér að gert er ráð fyrir að smáhýsum verði fjölgað úr 5 í 8. Stærð þeirra var áður allt að 60 m2 en verði nú allt að 40 m2. Lóðirnar eru minnkaðar, þeim hliðrað til suðurs og akfærum stíg er hliðrað.
8. 1010028 - Nýtt deiliskipulag verslunar- og þjónustulóðar á Arnarstapa.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að skipulagstillagan verði auglýst
samkv. 3. mgr. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga.
Tillagan felur í sér að gert er ráð fyrir einni 10.670 fm viðskipta- og
þjónustulóð. Innan lóðar má reisa allt að 500 fm þjónustuhús og 8 smáhýsi
allt að 40 fm hvert hús.
12. 1010016 - Hofgarðar - Umsókn um byggingarleyfi fyrir 10 gestahús.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita byggingarleyfi að
Hofgörðum fyrir 2 gestahúsum, a og b. Einnig er veitt bráðarbirgðar byggingarleyfi fyrir 8 gestahúsum c,d,e,f,g,h,i og j samkv. innsendum teikningum unnum af ABS teiknistofu.
13. 1010023 - Lýsuhóll - Umsókn um byggingarleyfi á þjónustuskála.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita byggingarleyfi að Lýsuhóli til að stækka og breyta notkun á matshluta 05 úr bílskúr og vélageymslu í þjónustuskála í tengslum við ferðaþjónustu á bænum, samkv. meðf. teikningum dags. 13.10.2010
14. 1010022 - Brekkubær - Umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita byggingarleyfi að
Brekkubæ, Hellnum fyrir einnar hæðar timburviðbyggingu alls 335,8 m2 auk 22,4 m2 útipalls samkv. teikningum dags. 15.10.2010 unnum af Guðmundi Gunnarssyni. Með fyrirvara á flóttaleiðum úr herbergjum sé fullnægt.
21. 1010008 - Kirkjuhóll - Umsókn um stöðuleyfi fyrir vinnuskúr.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita stöðuleyfi til sex mánaða, ekki verður um frekari framlenginu á stöðuleyfi að ræða. Eins er veitt leyfi fyrir klæðningu á skúr og uppistandandi hús. Nefndin vill benda á að vinna þarf deiliskipulag fyrir svæðið ef skúr á að vera áfram og skal það vinnast á næstu sex mánuðum.
22. 1011001 - Lýsudalur - Umsókn um byggingarleyfi fyrir þjónustuhús á
tjaldstæði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir byggingarleyfi fyrir 36,1 fm
þjónustuhús á tjaldstæði í Lýsudal.
24. 1010027 - Þórdísarflör lnr. 2193331 - Lagning heimreiðar að
byggingarreit.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita framkvæmdaleyfi fyrir
heimreið að byggingarreit að Þórdísarflöt á Hellnum.
Snæfellsjökull og skíðaiðkun (af skessuhorn.is)
Snæfellsjökull gæti laðað hingað skíðalið úr öllum heiminum
9. september 2011
Helgi Geirharðsson, kunnur skíða- og athafnamaður, sem lengi hefur beitt sér fyrir bættri aðstöðu til skíðaiðkunar á Íslandi, telur að Snæfellsjökull sé besti kosturinn sem Íslendingar eiga til að koma upp aðstöðu til að skíða yfir sumartímann. Þar þurfi ekki að leggja út í mikinn kostnað til að bæta aðgengi að jöklinum norðanmegin og koma upp lyftu. Kristinn Jónasson bæjarstjóri í Snæfellsbæ er meðal þeirra sem sýnt hefur þessu áhuga. Helgi hafði samband við Skessuhorn í kjölfar umfjöllunar blaðsins nýlega um vel heppnaði æfingu skíðalandsliðsins á jöklinum fyrir skömmu.  “Við höfum vissu fyrir áhuga erlendra skíðaliða að nýta sér slíka aðstöðu til æfinga fyrir sín landslið yfir sumartímann. Í dag sækja stærstu liðin um allan heim bæði til Chile og Nýja Sjálands til að koma sínu fólki á snjó. Snæfellsjökull getur hentað vel sem valkostur fyrir lið í Norður-Ameríku og Evrópu, sér í lagi þar sem allir smájöklar í Evrópu fara minnkandi.
Sjá nánar í umfjöllun í Skessuhorni vikunnar.
http://skessuhorn.is/Default.asp?sid_id=24845&tId=99&Tre_Rod=001|002|&fre_id=119834&meira=1
Snæfellsnessrallýið
Snæfellsnesrally
Snæfellsnesrally verður haldið dagana 2. og 3. september, þetta er fjórða árið í röð sem rallað er á Snæfellsnesi
Á síðasta ári unnu heimamenn keppnina, þá sigruðu Einar Sigurðsson og Símon Grétar Rúnarsson á Audi Quatro S2 eftir harða baráttu, aðeins munaði 15 sekúndum á efstu bílum í lok ralls.
Keppnin í ár samanstendur af þremur leiðahlutum og fer sá fyrsti fram á föstudagskvöld, annar fer fram fyrir hádegi á laugardag og sá þriðji og síðasti eftir hádegi á laugardag.
Eftir fyrsta og annan leiðahluta gefst þeim sem dottið hafa út kostur á að gera við og mæta aftur til keppni. Rásröð keppenda verður breytt fyrir hvern leiðahluta eftir stöðu í lok fyrri hluta.
Á föstudag verður ekið um Jökulháls, Eysteinsdal og Breið, að því loknu verður viðgerðarhlé í portinu við frystihúsið í Ólafsvík.
Á laugardagsmorgun verður ekið um Jökulháls og Eysteinsdal og síðasta leið fyrir hádegishlé verður Breið, í hádeginu verður viðgerðarhlé á planinu við Stakkholt. Fyrsta leið eftir hádegi verður innanbæjarleið í Ólafsvík sem fengið hefur nafnið Orkubrautin, leiðin liggur síðan austur eftir Snæfellsnesi þar sem ekið verður um nýja sérleið um Eyrarfjall, Berserkjahraun verður ekið tvisvar og síðan verður leiðin um Eyrarfjall ekin aftur áður en ekið er til Ólafsvíkur þar sem verðlaunaafhending verður í Átthagastofunni.
Innanbæjarleið - Orkubrautin
Fyrsta sérleið eftir hádegi á laugardag er innanbæjarleið sem hefur fengið nafnið Orkubrautin þar sem að Orkan hefur gefið aukaverðlaun fyrir þann sem ekur leiðina á skemmstum tíma. Því má búast við miklum tilþrifum.
Leiðin liggur um hafnarsvæði Ólafsvíkur og má sjá leiðina merkta inn á loftmyndina hér við hlið.
Mikilvægt er að áhorfendur haldi sér í hæfilegri fjarlægð til að verða ekki fyrir grjótkasti.
Á milli þess sem undanfari ekur leiðina og þangað til eftirfari fer um þá er leiðin lokuð öllum öðrum en rallybílum.
Samkvæmt tímaáætlun verður fyrsti bíll ræstur inn á leiðina kl. 13.53
Upplýsingamiðstöð og stjórnstöð rallsins verður  í
Átthagastofunni á meðan á rallinu stendur.
Nánari upplýsingar fást hjá keppnisstjóra í síma 8481930 - Sigurður Rúnarsson
Framkvæmdir á Hellnum og ferðaþjónusta
ferðamála en það má segja að tveir þriðju þeirra gesta sem koma í húsið