Dreifarinn
08.02.2010 17:13:32 / Ólína

Rafmagn tekið af

Samkvæmt upplýsingum frá RARIK, verður rafmagn tekið af á Hellnum, frá kl. 13.00, fram eftir degi, vegna viðgerða á línu í Hellnahrauni.

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.02.2010 17:12:15 / Ólína

Þorrablót 2010

Send hefur verið út auglýsing um Þorrablót Breiðvíkinga 2010 og er frestur til að panta, fram á sunnudag 14. febrúar, hjá Guðný í Tungu.

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.02.2010 17:10:46 / Ólína

Af Indlandsförum

Allt gott er að frétta af Indlandsförum og fór brúðkaupið fram um helgina. Von er á hópnum til baka 15. og 16. febrúar. Bryndís í Búð hefur sett inn myndir á Fésbók.

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.02.2010 17:06:18 / Ólína

Fundargerðir Snæfellsbæjar (af snb.is)





Bæjarstjórn, fundur nr. 206
Dags. 7. Janúar 2010

206. fundur bæjarstjórnar Snæfellsbæjar, haldinn fimmtudaginn 7. janúar 2010 og hófst hann á skrifstofu bæjarstjóra kl. 16:00.

 

         Mættir:

                   Kristjana Hermannsdóttir

                   Jón Þór Lúðvíksson

                   Brynja Mjöll Ólafsdóttir

                   Ólafur Rögnvaldsson

                   Kristján Þórðarson

                  Steiney Kr. Ólafsdóttir

                   Fríða Sveinsdóttir

                   Kristinn Jónasson, bæjarstjóri.

                   Lilja Ólafardóttir, bæjarritari



8)         Bréf frá Margréti Björk Björnsdóttur, dags. 26. nóvember 2009, varðandi  ályktanir stýrihóps um uppbyggingu náttúrulauga við Félagsheimilið að Lýsuhóli.

Bæjarstjórn tekur undir þessi sjónarmið og samþykkti samhljóða að senda erindi þar um til Vegagerðarinnar.


Íþrótta- og æskulýðsnefnd, fundur nr. 49
Dags. 13. Janúar 2010

49. Fundur Íþrótta- og æskulýðsnefnar var haldinn að Grundarbraut 45 miðvikudaginn 13. janúar 2010 kl: 16:15

                         Mættar voru:

                         Brynja Mjöll Ólafsdóttir

                         Elva Ösp Magnúsdóttir

                         Erla Sigurðardóttir

                         Snædís Hjartardóttir

8)

1.                    Erindi: bréf til íþrótta- og tómstundarfulltrúa, nefndarinnar og bæjarstjórnar frá Kristjáni Þórðarsyni varðandi kostnað á akstri foreldra frá Staðarsveitinni á íþróttaæfingar.

Kynnt var niðurstaða málsins og voru nefndarmenn sáttir við hana. Ákveðið hefur verið að eftir 1 ár verði málið skoðað aftur og lagt mat á hvort þessu fyrirkomulagi verði haldið áfram eða því breytt.

http://snb.is/Default.asp?Sid_Id=20640&tId=99&Tre_Rod=&qsr





» 0 hafa sagt sína skoðun

31.01.2010 14:42:56 / Ólína

Að gefnu tilefni

Mig langar til að setja hér inn eftirfarandi yfirlýsingu af vefsíðunni www.heiður.is  þar er skorað á þingmenn að skrifa undir hana en einungis sex þingmenn hafa séð ástæðu til að gera það:


Yfirlýsing

Ég er alþingismaður. Vinnuveitendur mínir eru fólkið í landinu og til þeirra sæki ég umboð mitt.

Sem kjörinn fulltrúi þjóðarinnar heiti ég að...

  • ...setja hagsmuni þjóðarinnar framar hagsmunum flokksins, sjálfs mín og hvers konar sérhagsmunum.
  • ...flytja mál, tala og kjósa í hverju máli samkvæmt eigin sannfæringu.
  • ...gera í alla staði mitt besta til að standa undir því trausti sem mér er sýnt.

Af virðingu við lýðræðið heiti ég að...

  • ...meta skoðanir og hugmyndir á eigin verðleikum, óháð því hver setur þær fram.
  • ...virða þá sem eru mér ósammála, kynna mér rök þeirra og skilja til hlítar hvar okkur greinir á.
  • ...orða skoðanir mínar þannig að leiði til samstöðu og sátta frekar en sundrungar.

Í anda uppbyggilegrar umræðu heiti ég að...

  • ...byggja skoðun mína á öllum staðreyndum mála, einnig þeim sem ekki henta mínum málstað.
  • ...vera tilbúinn að skipta um skoðun ef nýjar upplýsingar, skilningur eða aðstæður kalla á það - og unna öðrum hins sama.

Jafnframt heiti ég því að hafa í huga að aðrir alþingismenn eru samstarfsmenn mínir – og eru líka hér til að vinna Íslandi vel. Það sem skilur okkur að eru þær leiðir sem við teljum líklegastar til árangurs. Við erum því ekki andstæðingar, heldur samherjar í því að vinna að hagsmunum þjóðarinnar. http://www.heidur.is/


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.01.2010 20:56:33 / Ólína

Valentina gefur út bók (af snb.is)

26. janúar 2010 09:42

Valentina Kay gefur út kennslubók

 Bókin er söngleikrit og heitir Prinsessa Súsí. Hún hentar sem kennslubók fyrir börn í leikskólum, grunnskólum og tónlistarskólum.

Rósa Erlendsdóttir kennari aðstoðaði Valentinu við að skrifa íslenskan texta. Barbara Fleckinger kennari samdi söngtexta við 7 lög. Dóttir Valentinu, Viktoria, bað hana um að semja sögu um prinsessu. Viktoria teiknaði allar myndirnar í bókinni. Samskipti ehf. og Starfsmenntasjóður FT og FÍH studdu útgáfuna. Bækurnar eru nú fáanlegar í Tónastöðinni. Valentina er að semja nýja bók sem heitir Etudes. 



Valentina hóf sjálf tónlistarnám þegar hún var 5 ára gömul. Hún stundaði tónlistarnám í Úkraínu í sex ár,  í Hvíta-Rússlandi í fjögur ár og  í Rússlandi í fimm ár. Valentina lærði á píanó og harmonikku en einnig lærði hún útsetningu og hljómsveitarstjórn. Hún lauk prófi sem tónlistarkennari frá Conservatoriu Ríkisins í Petrozavodsk. Eftir að hún fluttist til Íslands 2002 hefur hún haldið áfram að mennta sig og árið 2008 útskrifaðist hún sem tónsmiður frá Listaháskóla Íslands.

Valentina er nú skólastjóri Tónlistarskóla Snæfellsbæjar, eins og kunnugt er, en hún hefur starfað með börnum frá því hún var 17 ára gömul.

H A



http://snb.is/default.asp?sid_id=1995&tid=2&fre_id=97659&meira=1

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.01.2010 02:07:04 / Ólína

Leirnámskeið

Sigrún á Kálfárvöllum og Astrid á Ölkeldu hafa auglýst leirnámskeið:

Við höfum ákveðið að skella á léttu leirnámskeiði miðvikudaginn 20. janúar
kl 15:00.

Þeir sem hafa áhuga eru beðnir um að láta vita á netfang
sigrung@vortex.is
eða í síma 896-4574 fyrir kl 12, föstudaginn 15. janúar (á morgun).

Þátttakendur þurfa einungis að greiða efniskostnað og brennslu.



Kveðja

Sigrún og Astrid


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.01.2010 13:39:49 / Ólína

Verðlaunasagan

Dreifarinn hefur fengið leyfi höfundar til að birta verðlaunasögu Sólrúnar Silju í Böðvarsholti.

Jólasaga

Óskastund barnanna

Það var kvöld eitt í desember, það voru alveg að koma jól. Ég var að koma heim og sá þá gamlan mann sitja á bekk, fyrir framan húsið mitt. Ég stoppaði og leit á hann, mér fannst ég hafa séð hann áður. Hann var á einhvern hátt kunnuglegur, með langt hvítt skegg og rauða alpahúfu. Ég brosti og veifaði til hans og óskaði honum gleðilegra jóla. Hann var að raula eitthvað lag fyrir munni sér, en ég lét það vera og fór inn.

Daginn eftir fór ég út í búð með mömmu að kaupa jólagjafir. Þá sá ég skrítið auglýsingablað hanga þar á vegg. Ég las auglýsinguna, þar stóð að eitt barn mætti fara og hitta Jólasveininn, og fá allt sem það langaði í. Þetta var kannski of ótrúlegt til að vera satt. Það virtist samt enginn hefði tekið eftir þessari auglýsingu í öllum æsingnum fyrir jólin, því allir upplýsingamiðarnir voru enn fastir á blaðinu. Ég tók auðvitað einn miða og stakk honum í vasann, til að ég gæti skoðað hann betur seinna. Þegar við komum heim fór ég beint upp í herbergi til að skoða miðann. Ég tók hann upp úr vasanum og skoðaði hann í krók og kring. Miðinn var með fallegri áletrun, á honum stóð bara: óskastund barnanna.  Ég hljóp niður til að segja mömmu fréttirnar og spyrja hana hvort ég mætti fara að hitta Sveinka. En þegar ég sýndi henni miðann, þá sá hún ekki neitt á honum.  Ég varð undrandi og sagði henni hvað stæði þarna, en hún sá það ekki, og sagði mér bara að fara og hugga Kolbein litla bróður minn, sem var að vola. Þegar ég kom til Kolbeins og tók hann upp, þá byrjaði miðinn að lýsa. Ég vissi ekki hvaðan á mig stóð veðrið, og horfði hissa á miðann, þá kom önnur áletrun á hann, þar stóð: slepptu mér. Ég varð skelfingu lostin og missti miðann, sem sveif þá í burtu, en ég varð svo forvitin að ég fór á eftir honum . Ég sleppti ekki augunum af miðanum, enn hélt fast á Kolbeini. Miðinn fór í alskinns króka um húsið, það var eins og hann væri lifandi. Loks staðnæmdist hann fyrir framan háaloftsdyrnar, ég varð hissa, en opnaði dyrnar. Miðinn sveif áfram og við fórum á eftir honum upp stigann. Þarna var hann, Sveinki og sleðinn, hreindýrin og pokinn með öllum jólagjöfunum. Já, Jólasveinninn sat þarna, í sínum rauðu fötum og veifaði voða vingjarnlega. Þá sá ég að Sveinki var maðurinn með rauðu alpahúfuna. Kolbeinn fór aftur að skæla, en þá kom Sveinki til mín, tók Kolbein fór að sleðanum sínum og teygði sig í pokann sinn. Hann tók lítinn pakka upp úr pokanum og rétti Kolbeini. Kolbeinn varð glaður og byrjaði strax að rífa utan af pakkanum, þá kom Labbi uppáhalds bangsinn hans, sem hann var búinn að týna, í ljós. Kolbeinn varð alsæll að fá bangsann sinn aftur og knúsaði hann fast. Þá loksins leit Sveinki á mig og sagði, vilt þú ekki eitthvað líka?  Jú, svaraði ég. Þá spurði hann hvað ég vildi, en ég sagðist ekki vilja neitt sérstakt, sem var ekki satt, því mig hafði lengi langað í fínu dúkkuna í bláa blúndukjólnum, sem stóð í glugganum í búðinni. En ég vildi ekki biðja um of mikið, svo að ég þagði bara um það. Hann seildist í pokann sinn og dró upp pakka með fallegum bleikum borða og rétti mér. Ég opnaði pakkann, og þarna var hún, fallega dúkkan úr glugganum. En þá heyrði ég að mamma var að kalla á mig, hvort ég ætlaði að sofa í allan dag og missa af jólunum. Ég stökk upp og hljóp niður í stofu. Þar sat Kolbeinn sæll og glaður,með Labba sinn í fanginu. Mamma var að raða pökkum undir jólatréð, og þarna lá fallegur pakki með bleikum borða, mér fannst ég hafa séð hann áður. 

 Gleðileg jól.

 Höfundur: Sólrún Silja Rúnarsdóttir. 8.bekk. Lýsuhólsskóla í Staðarsveit.

Heimili: Böðvarsholt í Staðarsveit, 356 Snæfellsbær. Sími: 435 6699


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.01.2010 13:19:41 / Ólína

Lýsuhólsskóli

8. janúar 2010

Mikil og þörf nýárshreingerning var gerð í gær á gömlu heitu pottunum vestan við skólann, þeim Siggu og Stjána. Það var miðdeildin, 5.-7. bekkur sem tók verkið að sér undir stjórn Sigrúnar og Siggu. Tveir franskir ferðamenn náðu með naumindum að ljúka heilsubaði sem þeir höfðu fengið sér í Stjána, áður en atgangurinn hófst. 
http://lysuholsskoli.vortex.is/

Á síðunni sjálfri má sjá mynd þar sem Eygló Fjóla á Bláfeldi, Björk á Álftavatni, Kristín María á Ökrum og Kristjón á Furubrekku, öll í 6. bekk Lýsuhólsskóla, eru í óða önn við hreinsunarstörf.



» 0 hafa sagt sína skoðun

08.01.2010 16:31:02 / Ólína

Þorrablót 20. febrúar

Hafinn er nú undirbúningur að hinu árlega Þorrablóti sem haldið verður á Lýsuhóli. Nú er það í höndum Breiðvíkinga að finna veika bletti á nágrönnum sínum og vinum í Staðarsveit og útbúa frambærilega skemmtun úr því fyrir gesti blótsins, sem áætlað er að fari fram 20. febrúar. Ástæðan fyrir að þessi dagur er valinn og svona seint á þorranum, er að margir úr sveitinni fara til Indlands nú í lok janúar, í brúðkaup þeirra Helgu Hrundar Bjarnadóttur á Tröðum og hennar indverska unnusta, Leslie Steven Dcunha. Þau koma síðan ekki aftur fyrr en um miðjan febrúar. Hótel Búðum verður lokað á meðan.

Þorrablótið verður væntanlega með hefðbundu sniði; þorramatur, heimatilbúin skemmtidagskrá og dansleikur á eftir. Nánari upplýsingar koma síðar.

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.01.2010 00:35:02 / Ólína

Síðustu tónleikar Stormsins í bili

Tónleikar
Stormur í Aðsigi Spilar á Bar 46, Hverfiðgótu 46
Laugardaginn 9. Janúar
Tónleikar hefjast K.l. 22:00 stundvíslega.
Þórdís trommari er á förum til Bandaríkjahrepps að nema einhver fræði
og verða þetta því síðustu tónleikar stormsins á þessum vetri!!!
Tónlist má finna á   www.keli.is

Með kveðju úr sveitinni
Keli
Görðum Snæfellsbæ
Sími 898 8823
keli@keli.is
www.keli.is

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.01.2010 14:32:51 / Ólína

Fundargerðir Snæfellsbæjar (af snb.is)

Bæjarráð, fundur nr. 212
Dags. 10. Desember 2010

212. fundur bæjarráðs Snæfellsbæjar, haldinn fimmtudaginn 10. desember 2009 og hófst hann á skrifstofu bæjarstjóra kl. 12:00.

 

         Mættir:

                   Jón Þór Lúðvíksson

                   Kristjana Hermannsdóttir

                   Kristján Þórðarson

                   Kristinn Jónasson, bæjarstjóri.

                   Lilja Ólafardóttir, bæjarritari

 

Formaður bæjarráðs setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna.  Var að því loknu gengið til boðaðrar dagskrár.

4)                 Minnispunktar bæjarstjóra

a)                   Kristján Þórðarson óskaði eftir því að bæjarráð samþykkti eftirfarandi tillögu

Bæjarráðsfundur  10. des .2009

Bæjarráð Snæfellsbæjar mótmælir harðlega þeirri ákvörðun Vegagerðarinnar að fækka snjómokstursdögum í Breiðuvík ,Arnarstapa og Hellnum í fjóra daga  í viku á næsta ári.

Á þessu  svæði  eru bæði börn sem sækja skóla að Lýsuhóli hvern virkan dag og einnig fólk sem sækir vinnu út fyrir byggðina. Það er því alveg óviðunandi að skerða svo mjög þjónustu vegargerðarinnar  við íbúa þessa svæðis  og skorar Bæjarráð Snæfellsbæjar á Vegagerðina að endurskoða þessa ákvörðun sína.

Tillagan samþykkt samhljóða.
http://snb.is/Default.asp?Sid_Id=1942&tId=4&ID=13500&Tre_Rod=001|004|&qsr 



» 0 hafa sagt sína skoðun

02.01.2010 17:24:04 / Ólína

Hálka

Skessuhorn, 2. janúar 2010

Hálka er nú á Holtavörðuheiði, Vatnaleið, Fróðárheiði og víðar á Snæfellsnesi. Hálkublettir eru á flest öðrum leiðum í landshlutanum.



http://www.skessuhorn.is/Default.asp?Sid_Id=24825&tId=99&Tre_Rod=&qsr


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.12.2009 13:55:23 / Ólína

Færð

Skessuhorn, 31. desember 2009

Ágæt færð en varað við hálku og hálkublettum
Nú er hálka á Holtavörðuheiði, Vatnaleið og á Fróðárheiði á Snæfellsnesi...

http://www.skessuhorn.is/Default.asp?Sid_Id=24825&tId=99&Tre_Rod=&qsr


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.12.2009 02:27:01 / Ólína

Áramótakveðja

Dreifarinn sendir lesendum áramótakveðjur og þökk fyrir liðið ár. Í kvöld verður hin næstum árvissa brenna á Balhól þar sem oft hefur kviknað alveg óvart í einhverju spítnarusli sem einhver kastar þar á Gamalárskvöld, sennilega út af öllum rakettunum sem þaðan er skotið upp. Allir eru velkomnir.

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 65
Heimsóknir
Í dag:  54  Alls: 141978